Ekkert Internet? Fáðu forrit frá fólki í nágrenninu.
Öll snjalltækin þurfa að hafa náð í F-Droid og sett það upp áður en hafist er handa. Öll snjalltækin ættu að fylgja leiðbeiningunum hér fyrir neðan.
`
-
Þrep 1
Opnaðu F-Droid. Ýttu á 'Nálægt' í valmyndinni neðst á skjánum.
-
Þrep 2
Ýttu á 'Finna fólk nálægt mér' til að leita að samhæfðum tækjum.
-
Þrep 3
Þegar fólk sem er nálægt finnst, þarft þú og tengiliður þinn að velja hvort annað.
-
Þrep 4
Þegar þið hafið tengst, skaltu velja þau forrit sem þú vilt deila með hinum aðilanum.
-
Þrep 5
Ýttu á '—>' hnappinn.
-
Þrep 6
Viðkomandi fær kvaðningu um að staðfesta tengibeiðnina.
-
Þrep 7
Ýttu á 'Setja upp' hnappinn næst forritunum sem þú ætlar að setja upp.
-
Þrep 8
ýttu einu sinni í viðbót á 'Setja upp'. Síðan þarftu að fylgja fyrirskipunum Android til að ljúka uppsetningarferlinu.
-
Þrep 9
Þegar uppsetningum er lokið verða forritin þín tiltæk í forritagalleríi Android-kerfisins auk þess að sjást í F-Droid app undir uppsettum forritum.
-
Þrep 10
Til að fá aðgang að uppsettum forritum, opnaðu stillingar F-Droid og veldu 'Sýsla með uppsett forrit' í flokknum 'Forritin mín'.